Ákvað að setja dagskrána hérna inn á
heimasíðuna...
Kl. 13:00 Borgarhólsskóli
Hittumst upp í Borgarhólsskóla þar
sem við hittum Halldór skólastjóra en hann mun rölta með okkur um
húsnæðið og sjálfsögðu verður nikkan hans með í för. Einnig er
planið að skoða gamlar myndir þannig að þið sem eigið eitthvað að
myndum endilega að koma með þær.
Kl. 14:30 Leikir og fótbolti
Jóa leikfimiskennari ætlar að láta
okkur sprella smá og verður endað á fótbolta þar sem stórleikur
verður á milli deildanna eins og oft var leikið hér áður fyrr í
frímínútum.
Kl. 16:00 Mynda- og vídeóklipp í
leikhúsinu
Snillingurinn Alli Sævar er búinn að
setja upp gamlar myndir og vídeóklipp frá salnum og það ætlum við
að horfa á og hlæja mikið J
Kl 17:00 Frjáls tími til 18:30 – ef tími
gefst til verður kannski rölt niðrá bryggju
Allir í sturtu og
græja sig fyrir kvöldið góða
J
Kl. 18:30 Kvöldmatur í kaldbakssal í
Kaldbak
Hinn margumtalaði Kári kokkur á Sölku
ætlar að sjá um að grilla ofan í okkur lambakjöt sem keypt var frá
Káess grillþjónustu og með því verður kartöflusalat, ferskt salat,
PikNik og sælkeragrillsósa.
Drykkjarföng er í höndum hvers og
eins.
Makar eru velkomnir um hálf
ellefu.
Í kaldbakssal ætlum við að vera og
skemmta okkur fram á kvöld. Ef fólk hefur áhuga að koma með einhver
skemmtiatriði eða eitthvað annað er það auðvitað velkomið. Síðan er
planið að fara á einhvern af skemmtistöðum bæjarins. Þær
upplýsingar sem við fengum um hvað væri um að vera var ekki alveg
komið á hreint en bæði verður ball á Sölku og Bauknum og reynum við
auðvitað að fara öll saman gaman
J
Minnum á að vera klædd eftir
veðri og hafa góða skó í fótboltann þar sem örugglega verður
hart barist og ekkert gefið eftir. Einnig að hafa góða skapið
með og eitthvað til að væta kverkana yfir daginn.